(English below)
Arnarlax hefur það markmið að stunda sjálfbært fiskeldi í sátt við umhverfi og samfélag og starfar eftir kröfum ASC staðalsins um sjálfbæra framleiðslu á samfélagslega ábyrgan hátt.
Arnarlax einsetur sér að ganga vel um náttúruauðlindir og haga rekstri sínum svo að sem minnst röskun verði á náttúru og lífríki, með það að markmiði að lágmarka neikvæð áhrif á umhverfið frá starfsemi fyrirtækisins á Vestfjörðum og Suðurlandi.
Arnarlax notar eingöngu fóður sem stenst kröfur um sjálfbæra framleiðslu og rekjanleika.
Arnarlax fylgir þeim lögum og reglugerðum er lúta að umhverfismálum hér á landi.
Arnarlax tekur þátt í rannsóknarvinnu sem og annarri vinnu opinberra aðila sem miðar að því að bæta umhverfisþætti í kringum eldisstöðvar og lágmarka áhrif á villt dýralíf. Fyrirtækið heldur grænt bókhald ásamt útgáfu sjálfbærniskýrslu og skráir alla helstu umhverfisþætti svo unnt sé að vinna að umbótum á því sviði.
Arnarlax tekur þátt í samstarfi eldisfyrirtækja sem stunda fiskeldi í sömu fjörðum á Vestfjörðum (e. ABM = Area Based Management & e. CBA = Common Biosecurity Area). Tilgangur þessa samstarfs er að tryggja gott heilbrigði fiska og lágmarka umhverfisáhrif af eldinu. Sérstaklega er litið til þess að koma í veg fyrir smit í eldinu og að slíkt smit berist í villta stofna. Aðilar samstarfsins deila upplýsingum sín á milli er varða:
1) Sjúkdómavarnir og meðhöndlun á fiski, 2) Eldisplön, 3) Hvíldartímabil, 4) Mælingar er varða sjúkdóma og 5) Lúsatalningar.
Umhverfismarkmið Arnarlax árið 2026 eru eftirfarandi:
Arnarlax has the goal of sustainable aquaculture in harmony with the environment and society and operates according to the requirements of the ASC standard for sustainable production in a socially responsible manner.
Arnarlax is committed to taking good care of natural resources and managing its operations so as to minimise disruption to nature and the biosphere, with the aim of minimising negative impacts on the environment from the company's operations in the Westfjords and South Coast of Iceland.
Arnarlax only uses feed that meets sustainable production and traceability requirements.
Arnarlax complies with the laws and regulations pertaining to environmental issues in Iceland.
Arnarlax participates in research work as well as other work by public bodies aimed at improving environmental aspects around farms and minimising impacts on wildlife. The company maintains green accounts and issues sustainability report every year along with recording all major environmental aspects in order to carry out improvements in this area.
Arnarlax participates in a collaboration between aquaculture companies in the same fjords in the Westfjords (ABM = Area Based Management & CBA = Common Biosecurity Agreement). The purpose of this cooperation is to ensure good fish health and minimise the environmental impact of farming. Particular attention is paid to the prevention of infestation in the farm and the transmission of such infestations to wild populations. The partners share information with each other concerning:
1) Disease prevention and treatment of fish, 2) Output plans, 3) Fallow periods, 4) Disease measurements and 5) Lice counts.
Environmental objectives of Arnarlax are in 2026: